- ..Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.. -
Úff loksins er ég buinn að koma svona bloggdóteríi í verk!
Og já vonandi næ ég að setja eitthvað fleira inn á þessa síðu fyrir utan bloggið. Ég kann nebbla frekar lítið á tölvur en já aldrei að vita nema ég finni eitthvað út úr þessu.
Held að málið sé að skella sér í klippingu á morgun til þess að fá smá forskot á rakarastofunrnar í frönskumælandihluta Kanada. Á bókað eftir að lenda í frekar miklum tungumálaörðuleikum þar sem ég kann ekki stakt orð í frönsku. Eða jú.. ég kann að segja Já=Oui og Nei=Non (minnir mig). Nenni engan vegin að vera hafa áhyggjur af þessu fyrsta mánuðinn útí útlandinu þannig það er eins gott að gera þetta bara heima.
Vá hvað ég sé eftir því að hafa ekki farið í frönskutíma aðeins í sumar. Ég fer með Alexander út til Kanada og við erum þeir einu sem fara til Kanada þetta árið. Öfunda hann ekkert smá mikið.. hann er með alveg þokkalega undirstöðu í frönsku því hann sótti tíma hjá einhverri gellu í allt sumar. Dem you! Ég kann ekki einu sinni að segja að ég sé svangur á frönsku.
Helgin hefur án efa verið mjög skemmtileg hjá mörgum enda var menningarnóttin núna á laugardag.
Ég sjálfur var í skotlandi á Edinborgarhátíðinni - Edinborg Fringe Festival - . Fór með familyunni og það eina sem við gerðum var að fara á sýningar, leikrit og tónleika, og út að borð. Ég hefði örugglega getað hugsað mér að sofna á sumum sýningunum sem er frekar dapurt. Leikhús fyrir mér er ekkert alltof spennandi hlutur nema sýninigin sé mjög góð auðvita. Hinsvegar finnst mér alltaf jafn gaman að fara út að borða.. maturinn var nánast alltaf alveg superb!=) Það sem stóð upp úr í þessari ferð voru geggjuðuð Puma skórnir sem ég keypti og þessar ljúffengu steikur.. mhm!
En já það sem máli skiptir.. Ég var að fá fjölskyldu í dag! Héraðið mitt heitir Mont St-Hilaire og það búa eitthvað um 16.000 manns á svæðinu. Svipaður fjöldi og á Akureyri held ég, þó svo ég hafi ekki hugmynd um það.
Foreldrar mínir eru víst um fertugt og þau eiga eina dóttur sem er 14.ára gömul.. Fékk e-mail frá henni í dag og hún er alveg kreisí í að kenna mér frönsku þannig það er bara gott mál.
Já ég get ekki beðið og ég óska öllum skiptinemunum góðrar ferða og vonandi verður kreisí gaman hjá ykkur!
au revoir
síðan bara málið að njóta þess að vera þarna.. skiptir ekki máli með afs reglurnar.. svo lengi sem þau komast ekki að neinu;)
je m´appelle = ég heiti (sjumapell)
je suis faim = ég er svangur (sjusvífe) 'þá veistu það'
je suis soif = ég er þyrstur (sjusvísvof)
þú getur slept "sví" þegar þú talar, frakkar nota það ekki mikið í talmáli en málfræði they do ;)
þú getur reynt allavega að muna þetta þannig að *æfa æfa æfa* svo þetta verður ekki eins erfitt í byrjun! gangi þér allra best :P
au revoir
stebbi
gott að að heyra elskur strákurinn minn er svona brattur með sig. Vonum að allt gangi vel og að við gamla settið lifum þetta af.
mamma
vertu svo duglegur að blogga svo við getum fylgst með þér :)
herdís
ps. eg vona að "systir" þin þarna úti kunni smá ensku líka ef hún ætlar að kenna þær fronsku með góðu móti =)
Gangi þér vel og ekki gleyma að blogga svo maður geti fylgst med þer!
Gott að heyra að allt gengur vel. Við vorum að koma úr sumarbústaðnum í morgun og fórum beint í vinnu . Það er svo tómlegt heima. Lilja og Óli voru með okkur í bústaðnum, pabbi var að smíða í gestahúsinu og ég bar á alla pottaveröndina. Ég skal athuga með bandaskóna þegar ég kem heim í hádeginu.
Spennt að heyra hvernig þér líst á skólann. Það verður spennandi fyrir þig að fá að spila fótbolta með liðinu. Hvað er þetta ca. löng keyrsla frá Montreal þar sem þú býrð og hvar er skólinn þinn?


vona að þú verðir duglegur að blogga og segja frá því sem að gerist.
Stay cool :)
Gugga